| Sigríður Ásta Guðjónsdóttir M.Sc. |
|
Sigríður Ásta Guðjónsdóttir er matvælafræðingur að mennt. Hún lauk BS gráðu í matvælafræði við Háskóla Íslands árið 1999. Hún stundaði framhaldsnám í matvælafræði við Háskóla Íslands og Chalmers Tekniska Högskola í Gautaborg í Svíþjóð og lauk MS gráðu í faginu frá Háskóla Íslands árið 2001.
Meistaraverkefni sitt vann hún á Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins (nú Matís) og fjallaði það um uppþíðingu á frosnum þorski til saltfiskvinnslu og er heiti verkefnisins „The Influence of Thawing Methods on the Quality of Salted Cod (Gadus morhua) Produced from Frozen Raw Material“.
Eftir að námi lauk hefur Sigríður starfað við vöruþróun og gerð innihaldsmerkinga í kjötvinnslu, sinnt verklegri kennslu við matvælafræði við Háskóla Íslands, starfað sem gæðastjóri í vöruhóteli fyrir matvæli, starfað að gæðamálum í lyfjaiðnaði og nú við ráðgjöf í gæðamálum. |



